Um Frambjóðandi.is
Skoðanakönnunin er gerð af fyrirtækinu Annað veldi ehf.
Atkvæði sem greitt er heldur sínum fulla styrk í einn mánuð, en eftir það afskrifast það á einu ári eða 365 dögum sem jafngildir um 0,27% minnkun í vægi á dag. Sem dæmi er atkvæði sem greitt er 1. sept. 2007 þannig orðið að hálfu atkvæði eftir 183 daga eða 1. mars 2008 og hefur minnkað í 17% af einu atkvæði á kosningadag laugardaginn 28. júní 2008.
Þátttakendum er heimilt að kjósa eins oft og þeir vilja.
Þátttakendur þurfa ekki að kjósa manneskju sem er þegar komin á lista. Þeim er heimilt að tilnefna hvern sem er, hvort sem viðkomandi hyggst á að bjóða fram í hinum raunverulegu kosningum eða ekki.
Það kostar ekkert að taka þátt.
Atkvæði greidd hér jafngilda ekki atkvæði til forsetakosninga 2008.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Huld Skúladóttir hjá Öðru veldi ehf sigrun@veldi.is
Athugasemdir og tillögur eru vel þegnar.
Könnunin hófst 10. ágúst 2007 kl 12:00.